head45.jpg
Forsíða
Pistlar
Æviágrip
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Byggðamál
Sjávarútvegsmál
Utanríkismál
Heilbrigðis/velferðarmál
Samgöngumál
Mennta- og skólamál
Efnahags- og skattamál
Almenn stjórnmál

Áfram vestur - öruggar samgöngur eru mannréttindi 30. nóvember 2009
Á laugardaginn var haldinn baráttufundur á Ísafirði fyrir bættum samgöngum á Vestfjörðum. Sérstaklega var lögð á hersla á að tengja saman norður og suðurhluta Vestfjarða með heils árs öruggum samgöngum í kjölfar uppbyggingar á veginum um Barðastrandarsýsluna. Til þess þarf Dýrafjarðargöng og nýjan veg yfir Dynjandisheiði. Fundurinn var geysifjölmennur, líklega á annað hundrað manns komu í misjöfnu veðri og alger samstaða var um ályktun fundarins. Að fundinum stóð 12 manna hópur, einstaklinga sem eru búsettir í fjórðungnum.

Ályktunin fer hér á eftir:

Almennur borgarafundur, haldinn á Ísafirði laugardaginn 28. nóvember 2009, fagnar nýfengnum samgöngubótum á Vestfjörðum, í Ísafjarðardjúpi og um Þröskulda. Framundan er bylting í samgönguöryggi með jarðgöngum til Bolungarvíkur. Fundurinn hvetur stjórnvöld til þess að hvika ekki frá markaðri stefnu um uppbyggingu Vestfjarðavegar í Barðastrandarsýslu og ætlast til þess að frestaðar fjárveitingar til framkvæmda verði til reiðu þegar að frekari framkvæmdum kemur á Vestfjarðavegi 60.

Það er eindregin skoðun fundarmanna að næsta stórverkefni verði að opna heilsárveg milli norður og suðursvæðis Vestfjarða og að það sé eðlilegt framhald af uppbyggingu Vestfjarðavegar í Barðastrandarsýslu. Aðstæður allar kalla á leiðina ÁFRAM VESTUR hvort heldur er að vestan til Ísafjarðardjúps eða þaðan og áfram vestur. Staða byggðar á Vestfjörðum hefur veikst verulega undanfarin ár.

Stækkun atvinnu- og samgöngusvæðisins með Dýrafjarðargöngum og heilsárs öruggum samgöngum milli svæðanna er áhrifamikil aðgerð, sem gerir Vestfirðingum kleift að snúa vörn í sókn á fjölmörgum sviðum. Mikilvægt er að á næstu árum verði áfram unnið að undirbúningi annarra brýnna verkefna, en höfuðáhersla er nú lögð á samtengingu svæðanna.

Heilsárs öruggar samgöngur eru grundvöllur nútímasamfélags ekki síður en aðgangur að heilbrigðisþjónustu og réttindum velferðarþjóðfélagsins. Það er óþolandi að Vestfirðingar skuli hafa verið án þessara réttinda áratugum lengur en flestir aðrir þegnar þjóðfélagsins. Við það verður ekki unað lengur að lítilsvirða grundvallarþörf á þessu sviði. Það er krafa fundarins að ríkisvaldið virði skyldur sínar og ráðist í ofangreindar framkvæmdir samkvæmt fyrirliggjandi stefnu Alþingis.

Almennur borgarafundur á Ísafirði lýsir skilningi á erfðri stöðu þjóðarbúsins eftir hrun helstu fjármálafyrirtækja landsins og fundarmenn eru tilbúnir til þess að taka þátt í erfiðu endurreisnarstarfi með stjórnvöldum. En að sama skapi er þess vænst að stjórnvöld hafi ríkan skilning á stöðu Vestfirðinga og átti sig á því tjóni sem þeir hafa þegar orðið fyrir vegna skorts á sömu mannréttindum og flestir aðrir landsmenn njóta.
<<<
Netfangið þitt:
Skrá netfang
Afskrá netfang
Vísa vikunnar ( 149): Lúið hef ég bakið beygt
Vísa vikunnar(148) : Góðra vina hylli hljóttu
Vísa vikunnar ( 147): Djúpmanna dug og elju
Vísa vikunnar ( 146): Sæll ég skynja landsins tungumál
Vísa vikunnar ( 145): Nú er undir sól að sjá
Vísa vikunnar ( 144): Ég leita þín vor
Vísa vikunnar (143): Íhaldsins er nú senn
Vísa vikunnar ( 142): Senn mun blána himinn hár
Vísa vikunnar ( 141): Grösin fölna, grána fjöll
Vísa vikunnar (140): Auðstétt brýtur ofan frá
Vísa vikunnar ( 139): Á göngu lífsins sótti að mér sopinn
Vísa vikunnar ( 138): Blómin lifna, bráðnar hjarn
Vísa vikunnar (137): Öðlast seggir þroska þá
Vísa vikunnar ( 136): Skipið er nýtt en skerið hró
Vísur vikunnar (135): Þó að tiðum þokuloft

Skoða eldri mola
Kristinn H. Gunnarsson · Traðarstígur 12 · 415 Bolungavík · Sími 892-7630 Netfang: kristinn@kristinn.is