head05.jpg
Forsíða
Pistlar
Æviágrip
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Byggðamál
Sjávarútvegsmál
Utanríkismál
Heilbrigðis/velferðarmál
Samgöngumál
Mennta- og skólamál
Efnahags- og skattamál
Almenn stjórnmál

Baráttufundur fyrir hvern? 23. mars 2010
Þegar blásið er til baráttufundar er spurt : fyrir hvern er baráttan? Fundurinn á Ísafirði á morgun er ekki baráttufundur fyrir heldur auglýstur sem baráttufundur gegn. Fundurinn er fyrst og fremst gegn breytingum á fiskveiðikerfinu. Það heitir aðför að landsbyggðinni. Baráttan er, þegar að er gáð, fyrir óbreyttum reglum um framsal, fyrir því að áfram verði hagur almennings í sjávarbyggðum á valdi þeirra sem hafa fiskveiðiheimildir undir höndum og að áfram megi þeir ráðstafa þeim á þann hátt sem þeim sýnist hverju sinni og hirði allan arð í eigin vasa.

Fyrir liggur fyrirheit ríkisstjórnarinnar um langþráðar breytingar á reglum um framsal. Útvegsmenn með LÍÚ í broddi fylkingar líka á það sem aðför gegn sínum hagsmunum. Þess vegna er fundurinn baráttufundur gegn en ekki fyrir.

LÍÚ vill engar breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu. Þegar kerfið var endurskoðað á síðasta áratug tókst LÍÚ að koma í veg fyrir allar breytingar. Núna leika þeir sama leikinn. Þeir leggja ekkert til, setja ekki fram neina málamiðlun eða sáttatillögu. Þeir eru bara gegn. LÍÚ reynir að eyðileggja störf nefndar sem á að ná samkomulagi um breytingar, ganga á dyr, neita að koma inn aftur nema ekkert verði rætt annað en það sem þeir samþykkja, hóta að sigla flotanum í land og hætta veiðum og beita Samtökum atvinnulífsins fyrir sig til þess að setja efnahagsmál þjóðarinnar í uppnám. Þeir krefjast þess að stjórna löggjöfinni og gefa ekkert fyrir umboð ríkisstjórnar sem kjósendur veittu henni í almennum kosningum. Krafa LÍÚ er krafa um afnám lýðræðisins.

Það eru hagsmunir almennings að þessari gölluðu löggjöf verði breytt. Það er gegn almannahag þegar útgerðarmaður á Flateyri getur selt allar veiðiheimildir staðarins í einu vetfangi og gert fólk atvinnulaust og skaðað verðmæti eigna þess. Það er gegn almannahag þegar útgerðarmaðurinn setur 2 milljarða króna eða kannski meira í eigin vasa og fer. Það er gegn almannahag þegar ekkert af þessu fé rennur til sveitarfélagsins til þess að standa undir þjónustu og velferðarkerfi. Það er gegn almannahag þegar fólkið missir vinnuna og flytur burt.

Staða Flateyrar og staða Ísafjarðarbæjar hefur versnað. Salan á kvótanum, sem var heimil vegna núverandi laga var aðgerð gegn íbúum sveitarfélagsins. Þess vegna er það gegn hagsmunum þeirra að vinna gegn breytingum.

Vilja bæjarstjórar og forráðamenn almennings á Vestfjörðum hafa það þannig að einn eða tveir menn verði áfram í þeirri stöðu að geta selt kvóta Gunnvarar í Hnífsdal eða Odda á Patreksfirði til dæmis til Samherja á Akureyri? Vilja menn endurtaka áföllin sem urðu við svik Samherja og Þorbjarnarsins eða skammarlega framkomu Guðmundar vinarlausa? Vilja þeir áfram að ekkert af andvirði kvótans renni heim í hérað? Vilja þeir áfram að leiga á veiðiheimildum fari þannig fram að fáeinar útgerðir raki saman fé og kúgi leiguliðana til þess að greiða allan afrakstur veiðanna til sín?

Eða hvað eru menn að meina með því að stíga upp í fangið á LÍÚ? Fyrst LÍÚ vill ekki taka þátt í því að breyta framsalsreglum kvótakerfisins og laga það að almannahag og ekki hvað síst hag sjávarbyggðanna þá eiga forystumenn Vestfirðinga að vinna að því að koma á breytingum án þeirra. Það verður eftir því tekið á morgun hvernig þeir haga máli sínu og hvað þeir raunverulega ætla sér með þessum fundi. Hitt vitum við hvað LÍÚ ætlar sér með fundinum. Það er andstætt hagsmunum Vestfirðinga.
<<<
Netfangið þitt:
Skrá netfang
Afskrá netfang
Vísa vikunnar ( 149): Lúið hef ég bakið beygt
Vísa vikunnar(148) : Góðra vina hylli hljóttu
Vísa vikunnar ( 147): Djúpmanna dug og elju
Vísa vikunnar ( 146): Sæll ég skynja landsins tungumál
Vísa vikunnar ( 145): Nú er undir sól að sjá
Vísa vikunnar ( 144): Ég leita þín vor
Vísa vikunnar (143): Íhaldsins er nú senn
Vísa vikunnar ( 142): Senn mun blána himinn hár
Vísa vikunnar ( 141): Grösin fölna, grána fjöll
Vísa vikunnar (140): Auðstétt brýtur ofan frá
Vísa vikunnar ( 139): Á göngu lífsins sótti að mér sopinn
Vísa vikunnar ( 138): Blómin lifna, bráðnar hjarn
Vísa vikunnar (137): Öðlast seggir þroska þá
Vísa vikunnar ( 136): Skipið er nýtt en skerið hró
Vísur vikunnar (135): Þó að tiðum þokuloft

Skoða eldri mola
Kristinn H. Gunnarsson · Traðarstígur 12 · 415 Bolungavík · Sími 892-7630 Netfang: kristinn@kristinn.is