head20.jpg
Forsíða
Pistlar
Æviágrip
Fyrirspurn
Myndir
Tenglar
Byggðamál
Sjávarútvegsmál
Utanríkismál
Heilbrigðis/velferðarmál
Samgöngumál
Mennta- og skólamál
Efnahags- og skattamál
Almenn stjórnmál

Kristinn H. Gunnarsson
F. í Reykjavík 19. ágúst 1952. For.: Gunnar H. Kristinsson (f. 1. nóv. 1930, d. 27. ágúst 2000) hitaveitustjóri og k. h. Auðbjörg Brynjólfsdóttir (f. 1. nóv. 1929, d. 17. jan. 2000) starfsmaður heimilishjálpar í Reykjavík, móðir Gunnars Birgissonar alþm.
K.1. (17. júní 1976) Aldís Rögnvaldsdóttir (f. 29. mars 1956) framkvæmdastjóri. Þau skildu. For.: Rögnvaldur Karstein Guðmundsson og k. h. Erla Sigurgeirsdóttir.
K.2. (4. sept. 2004) Elsa Björk Friðfinnsdóttir (f. 9. okt. 1959) hjúkrunarfræðingur, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. For.: Friðfinnur Friðfinnsson og k. h. Rannveig Ragnarsdóttir.
Börn Kristins og Aldísar: Dagný (1978), Erla (1979), Rögnvaldur Karstein (1981), Rakel (1985).
Stúdentspróf MR 1972. BS-próf í stærðfræði HÍ 1979.
Kennari við Grunnskóla Tálknafjarðar 1973, Grunnskóla Bolungarvíkur 1974-1975 og 1979-1981, Gagnfræðaskóla Sauðárkróks 1975-1976, við Ármúlaskóla og Fjölbrautaskólann í Breiðholti 1977-1979. Skrifstofustjóri hjá Jóni Fr. Einarssyni, byggingarþjónustu, í Bolungarvík 1981-1986, starfsmaður Bókhaldsþjónustunnar þar 1986-1991.
Bæjarfulltrúi í Bolungarvík 1982-1998, í bæjarráði 1986-1991, 1994-1995 og 1997-1998. Formaður stjórnar kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum 1982-1985. Formaður Verslunarmannafélags Bolungarvíkur 1982-1992. Formaður knattspyrnudeildar UMFB 1984-1988. Í framkvæmdastjórn Landssambands íslenskra verslunarmanna 1987-1991. Í flugráði 1987-1991. Í stjórnarnefnd um Skipaútgerð ríkisins 1989-1992. Í framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins 1989-1998. Í stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins 1991-1995. Í stjórnskipaðri nefnd um sameiningu sveitarfélaga frá 1991. Í stjórn Byggðastofnunar 1995-1999, formaður stjórnar 2000-2002. Í framkvæmdastjórn, landsstjórn og miðstjórn Framsóknarflokksins frá 1999 til 2003. Í tryggingaráði 2003 - 2004 og formaður stjórnar Tryggingarstofnunar ríkisins frá 2004.

Alþm. Vestf. 1991-2003 (Alþb., Ufl., Framsfl.), alþm. Norðvest. síðan 2003 (Framsfl.).
Formaður þingflokks Framsóknarflokksins 1999-2003.
Félagsmálanefnd 1991-1995, allsherjarnefnd 1991-1995, fjárlaganefnd 1995-1999, sérnefnd um fjárreiður ríkissins 1995-1997, sjávarútvegsnefnd 1998-2004 (form. 1998-1999), menntamálanefnd 1999-2003, landbúnaðarnefnd 1999-2003, efnahags- og viðskiptanefnd 1999-2004, sérnefnd um stjórnarskrármál 1999-2002, 2003 og 2004, iðnaðarnefnd 2003-2004 (form.), samgöngunefnd 2003-2004.
Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 1999-2003, Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2003-2004.

Ritstjóri: Vestfirðingur, málgagn Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum (1990-1998) og Ísfirðingur, málgagn framsóknarmanna á Vestfjörðum 2004.
Netfangið þitt:
Skrá netfang
Afskrá netfang
Vísa vikunnar ( 149): Lúið hef ég bakið beygt
Vísa vikunnar(148) : Góðra vina hylli hljóttu
Vísa vikunnar ( 147): Djúpmanna dug og elju
Vísa vikunnar ( 146): Sæll ég skynja landsins tungumál
Vísa vikunnar ( 145): Nú er undir sól að sjá
Vísa vikunnar ( 144): Ég leita þín vor
Vísa vikunnar (143): Íhaldsins er nú senn
Vísa vikunnar ( 142): Senn mun blána himinn hár
Vísa vikunnar ( 141): Grösin fölna, grána fjöll
Vísa vikunnar (140): Auðstétt brýtur ofan frá
Vísa vikunnar ( 139): Á göngu lífsins sótti að mér sopinn
Vísa vikunnar ( 138): Blómin lifna, bráðnar hjarn
Vísa vikunnar (137): Öðlast seggir þroska þá
Vísa vikunnar ( 136): Skipið er nýtt en skerið hró
Vísur vikunnar (135): Þó að tiðum þokuloft

Skoða eldri mola
Kristinn H. Gunnarsson · Traðarstígur 12 · 415 Bolungavík · Sími 892-7630 Netfang: kristinn@kristinn.is