|
2. maí 2007.
Hilmir Jóhannesson fékk verðlaun fyrir bestu vísuna í vísnakeppni Sæluvikunnar Í Skagafirði. Þegar hann tók við verðlaununum gat hann þess að á leið sinni í Safnahúsið, þar sem setningarathöfnin og verðlaunaafhendingin fóru fram, hefði hann veitt því athygli að fáni var á hverjum ljósastaur á leiðinni.
Fór hann með eftirfarandi vísu sem varð til á leiðinni:
Okkar sveitarfélag fer fráleitt yfir strikið. En að flagga fyrir mér finnst mér næstum mikið.
|