|
19. september 2010.
Þá vaknar loks af sumardvala vísa vikunnar þegar vantar aðeins viku upp á að 6 mánuðir eru síðan síðast var fært inn.
Í dag var farið í Kolaportið og fest kaup á minningar Thor Jensens í tveimur bindum sem Valtýr Stefánsson skrásetti og út komu 1954. Greinilegt er að bækurnar hafa verið í upphafi gefnar í 75 ára afmælisgjöf 3/5 1958 með vinarkveðju frá vinnufélögum. Hamingjuóskirnar eru settar fram í tveimur vísum. Hvorki kemur fram hver átti afmæli né hver orti, en vísurnar eru svona:
Hljóttu, jafnan, hvar sem fer, höpp, á lífsins vegi. Farsæld besta fylgi þér, fjörs að lokadegi.
Ætíð sé þín gata greið, grá þó verði hárin. Gæfan fylgi, lífs á leið. Lif þú hundrað árið.
|